Lögreglan í Reykjavík handtók í gær íslenska foreldra í Grafarvogi og setti barn í þeirra fórum í fóstur. Barnið er drengur, heitir Gunnar og er 8 ára, og er lítill eftir aldri. Nágranna hjónanna var farið að gruna ýmislegt, því barn hjónanna, sem eru lítið fólk ("dvergar"), var alveg eins og ekta Kínverji í útliti. Ekki eins og Jónas Sen, heldur alvöru Kínverji, bara minni ("dvergur").
DNA rannsókn af sams konar tegund og notuð var í Grikklandi til að sýna að "Hvíti Engillinn", María litla Kristsdóttir, sem tekin var af vondum sígaunum (Rómafólki), bendir eindregið til þess að hjónin hafi rænt barninu og að drengurinn sé af ætt Kínverja og sé ekki lítil persóna (dvergur) eins og íslenskir "foreldrar" hans. Þetta er ný tegund erfðarannsókna, sem aðeins tekur eina nótt að framkvæma. Telst það mjög hentugt til alls fréttaflutnings (æsiblaðamennsku).
Lögreglan í Reykjavík bendir þó á, að barninu gæti hafa verið rænt fyrir Íslendingana í Kína. 500.000 foreldrar í Kína hafa haft samband við lögregluembættið og telja að Gunnar geti verið barn þeirra. Rannsóknir á tönnum Gunnars litla leiddi í ljós, að hann væri kannski aðeins 6 ára að aldri og að hann borðaði of mikið af gotti.
Íbúar Grafarvogs telja að þetta sé liður í ofsóknum gegn sér.
Egill Helgason benti á á bloggi sínu í gær, að hann hafi á ferðum sínum um heiminn séð "einkennilega kínversk börn" í för með hvítu fólki, t.d. í Suður Frakklandi.
L. móðir Gunnars segir hann vera ekta Íslending, og að hann hafi mikinn áhuga á bílum og vilji helst ganga sem minnst.
Fjölskylda hjónanna sem alið hefur Gunnar upp, segja að Gunni hafi fengið pólitískt rétt, gott og andkristið uppeldi og haft allt af öllu, t.d. tvö IPöd og 50 fermetra herbergi. Þar fyrir utan er lítið Búddahof í stofunni.
Um leið og þessi sorglegu tíðindi berast úr Grafarvoginum, berast fréttir af því að drengur á 8. ári í Zimbabwe hafi gengið með stolin, blá augu í nokkur ár. Augun hafa umsvifalaust verið tekin úr honum og 8400 foreldrar í Bandaríkjunum telja að þetta séu bláu augun úr börnunum þeirra. Danskur þróunarhjálparstarfsmaður telur hins vegar öruggt að drengurinn hafi augun sín. (Sjá hér)
Við lifum svo sannarlega á tímum umburðarlyndis.
Íslendingar eru of bláeygir