Quantcast
Channel: Er ekkert í ísskápnum?
Viewing all articles
Browse latest Browse all 278

Dagur B. Eggertsson á Google Earth

$
0
0

Kokkurinn 

Ég hef eins og allir aðrir Íslendingar, sem þykir sæmilega vænt um landið sitt, verið á fullu á Google Jörð eftir að opnað var fyrir Strætaskimið.

Kokkinum á Óðinsvéum finnst mjög vegið að persónulegu einkarými sínu. Er hann var að panta tíma hjá tannlækni í sumar, ók googlebíllinn framhjá og smellti af kokki þessari mynd, þar sem greinilega sést að hann var svo að segja með höndina upp í munni af eintómum verkjum. Svona spreðast kokkarnir.

Dagur með bala

Skammt undan var dr. Dagur sem segir aldrei nei við góðu fótóopportúnitíi og hefur líklega beðið eftir Googlebílnum. Hér er hann að bera balann inn eftir að hafa kastað vatninu. Þetta var greinilega ekki dagur Dags. Hann hefur verið klesstur í framan og hefur kært það til Google. Dagur er greinilega líka búinn að setja rusl út á götu í von um að það verði hirt. Gnarr er búinn að setja á of há gjöld. Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.

Héðinn

Héðinn slör

Héðinn var lengi vel talinn hættulegur maður, og er víst enn. Einhver verður að segja Google að þetta er ekki stytta af barnaníðingnum á Hringbrautinni sem heldur á gotti í poka.

Where women find a real man in Reykjavík

Þegar erlendar konur koma til Íslands vita þær greinilega vel hvar hægt er að finna sætan gæja.

Ljótasti maðurinn á Íslandi

Þessi slapp við slikjuna þótt hann sé ljótasti maður landsins. Merki bankans sem hann auglýsir fyrir er aftur á móti talið banhættulegt, og er líklega enn á hryðjuverkalistanum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 278