Quantcast
Channel: Er ekkert í ísskápnum?
Viewing all articles
Browse latest Browse all 278

Stundin Okkar

$
0
0
Gonzo

Stundin okkar verður ekki svipur hjá sjón þegar hún birtist í nýju formi í dag.

Af fréttum Sjónvarps í gær mátti ljóst þykja, að þetta verður allt saman samansullað og stolið úr bandarískum frumleika, Sessamy Street (Sesamstræti) og Muppet Show (Prúðuleikurunum), fyrir utan einhverja sjálfsmeðaumkvun umsjónarmannsins, sem leyfir okkur að sjá hvernig hann hélt vinnu sinni á stofnun, þar sem menn ættu ekki að halda að það sé sjálfgefið að menn fái annan sjens ef brandararnir eru slappir og í samræmi við lélegan húmor fyrrverandi ríkisstjórnar.

Þess vegna hefur líklega verið talið hentugast að sækja í smiðju öruggra fyrirmynda sem höfða til skopskins fólks sem dreymir um dollara og evrur. Enginn hlær lengur að krónubröndurum. Danskir fimmaurabrandarar duga þó enn, enda 21,9 sinnum betri en þeir íslensku.

 Hvað finnst þér Villi

Hvað finnst þér Villi?

Ljóst er að Fúsi heitinn flakkari og Krummi muni snúa sér við í gröfinni. Stundin okkar er ekki þjóðleg lengur. Á kannski að fara að gera grín að þjóðdönsum og tala vel um land og þjóð?

Sem fyrrverandi smástirni í spurningarkeppni í Stundinni Okkar, sem sá mikli heiðursmaður Pálmi heitinn Pétursson stjórnaði fyrir 43 árum, leyfi ég mér að vona að sú kynslóð sem nú er er meðtækilegust fyrir Stundinni Okkar, þ.e. Samfylkingin, VG og börnin, verði ekki með ævilanga fordóma gegn fólki með stór nef, sem sprengt er í loft upp. Það er einfaldlega of nærri veruleikanum. En slíkur frumleiki er líka með í "nýrri" Stundinni Okkar.

Ég sá líka að sænski kokkurinn, eða frændi hans, hefur greinilega fengið annan sjens í Stundinni Okkar. Hann er að minnsta kosti skemmtilegri en Hringekjan og fréttirnar. 

Húmanisminn er augsjáanlega alveg að fara með menn á RÚV.

Sænski kokkurinn


Viewing all articles
Browse latest Browse all 278