
Vandi Framsóknarflokksins er ekki meinið á vinstri fæti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Vigdís Hauksdóttir er ekki einu sinni aðalvandinn, þótt margir haldi það. Aðalvandi Framsóknar er trúverðugleiki. Flokkurinn er í dag systurflokkur Radikale Venstre i Danmörku, sem er einn argasti stuðningsflokkur ESB þar í landi. Flokkurinn vill miklu meira ESB hér og en nú, og evru sem fyrst, í stað dönsku krónunnar sem veikist í kappi við evruna. Flokkurinn heldur því fram að Ísland sé að leið í ESB. Á heimasíðu flokksins er þessu haldið fram http://www.radikale.dk/CMS/vis.aspx?aid=100221 :
EU er et attraktivt fællesskab, som mange lande ønsker at blive medlem af. Vi skal fortsætte den udvidelsesproces, som altid har været en uadskillelig del af EU. Kroatien er på vej til at blive medlem, mens de andre Balkan-lande og Island venter i næste runde.
Radikale Venstre lýsir enn fremur yfir:
Vi ønsker en fælles flygtninge- og asylpolitik i Europa, hvor Danmark deltager på lige fod med de andre medlemslande. Vi kan ikke lade de sydeuropæiske lande stå alene med de problemer, som store flygtningestrømme indebærer.
Systir Framsóknar var ekki eins vingjarnleg við flóttamennina í Danmörku á 4. áratug síðustu aldar og hún er nú. Á tímabilinu 1940 til 1943 sátu Radikale Venstre i stjórn í Danmörku og vísuðu pólitískum flóttamönnum og gyðingum úr landi beint í flasið á nasistum, en fluttu samtímis út flesk og smjör til að metta þýska herinn í gyðingmorðunum.
Sigmundur Davíð verður að leiðrétta misskilningin meðal systurflokka sinna. Framsókn er ekki í neinum ESB-hugleiðingum. Eða skjátlast mér? Ef Sigmundur leiðréttir þetta ekki í Evrópu, hleypur mein í hægri fótinn og hann verður að vera gleiðfættur á gúmmískóm sem eftir er, og allt sem flokkurinn stendur fyrir verður bölvað jarm.
Vandi Sjálfstæðisflokksins er líka mikill, en það er greinilega kvensjúkdómur sem hrjáir þar á bæ. Hún jarmar í báðar áttir sjálfstæðiskonan sem er vinsælli í SF en hún er í Sjálfstæðisflokknum.
M€€€€€€