Quantcast
Channel: Er ekkert í ísskápnum?
Viewing all articles
Browse latest Browse all 278

Sveitasæla og kvalræði

$
0
0

es-101117-oxycontin-family-1507733616

Þessi grein Guðrúnar Hálfdánardóttur um Oxycontin og Sachler-fjölskylduna er stórfurðuleg og flaustursleg (hún er m.a. klippt og skorin úr Esquire). Blaðamaðurinn fárast yfir hættulegu lyfi, sem er leyft og sem læknar útdeila. En vinkillin hjá blaðamanni Mogunblaðsins er fyrst og fremst að bauna á framleiðandann og það fé sem hann leggur til af gróða sínum til menningarmála, fjölda safna og stofnana og meira að segja gyðingasafns í Berlín.

Ég held að Guðrún Hálfdánardóttir ætti að reyna að komast að kjarna málsins, og hann er sá að þetta lyf, Oxycontin, er notað og því dreift af læknum um allan heim. Meðan það er eins auðveldlega aðgengilegt og þar er nú, heldur fólk áfram að deyja af völdum þess, sér í lagi þeir sem ná í lyfið og voru fíklar fyrir. Það er ekki nein tilviljun að þetta lyfi er kallað Hillibilly Heroin (kannski væri Sveitasæla tilvalið orð á Íslandi). Menn ræna vopnaðir þessu lyfi í apótekum í Bandaríkjunum. Hinir lesa ekki þær átta blaðsíður með aðvörunum sem fylgja pökkunum. Rök eru lítils virði hjá fíklum og margir í BNA eru ólæsir.

Sachler-fjölskyldan er ekki ein ábyrg, heldur frekar heilbrigðisyfirvöld í fjölda landa, t.d. FDA í BNA, en einnig yfirvöld á Íslandi, þar sem læknar virðast frekar örlátir á verkja og deyfilyf. Á 10. áratug síðustu aldar fóru ýmsir framleiðendur og dreifingaraðilar í gang með herferð til að sannfæra menn um ágæti þessara verkjalyfja fyrir venjulega króníska verkjameðferð, en áður hafði lyfið verið markaðssett sem lyf fyrir sérstaka verkjameðferð, t.d. fyrir krabbameinssjúka í líknarmeðferð.

Það eru svo margir aðrir sem hagnast af kvölum annarra en ein fjölskylda í Bandaríkjunum.

Sem dæmi um annað flaustur í greininni má einni nefna þetta:

"Elsti bróðir­inn Arth­ur Mitchell Sackler fædd­ist árið 103 og lést árið 1987. Hann var þríkvænt­ur og hafa börn hans fjög­ur, öll af fyrri hjóna­bönd­um, bar­ist hat­ram­lega við ekkju hans, Gilli­an Lesley Tully, um yf­ir­ráð yfir auðæfum hans."

Fæddur árið 103. Kannski er Sachler-veldið líka í framleiðslu langlífisefna? Hvenær kemur svo grein frá íslenskum blaðamanni um hættuleg snefilefni í lýsisframleiðslu á Íslandi - efni sem jafnvel geta valdið krabbameini?

Ekki síst á Íslandi verða menn að fara hætta að éta töflur við öllu sem væru það saklaus vítamín. Stundum verða einnig að líta í eigin barm.

En því verður þó vart neitað að t.d. Bandaríkjamenn og Þjóðverjar vilja helst leysa öll sín vandamál með pillum. Eitt sinn vann ég með hópi Bandaríkjamann í fornleifaverkefni á Ströndum. Þeir tóku með sér heila pappatunnu eins og þvottaefni var áður selt í, fulla af alls kyns töflum. Fleiri hundruð töflur af verkjalyfjum og sýklalyfjum. Þeir komu með pillurnar sínar í handfarangri. Ég spurði þá í gríni hvort þeir væru hræddir um að fá malaríu og hundaæði á Íslandi og þeim var ekki skemmt. Leiðtogi leiðangursins var reyndar ættaður frá Appalachia fjöllum, þar sem neyslan á "Sveitasælu" hefur verið hve mest á meðal stuðningsmanna Trumps - sem nú ætlar nú að taka pillurnar frá þeim smile Í kjölfarið sjáum við örugglega fleiri skotárásir.

Rótina á vítahringnum er ekki að finna hjá framleiðendum einum, heldur hjá stjórnvöldum í löndum þar sem sönn velferð er aðeins til fyrir ríka, og þar sem fólk sem ekki hefur ráð á læknisþjónustu leysir vanda sinn með taumlausu pilluáti til að leysa lífsvanda sinn og verki sem er FÁTÆKT Í EINU RÍKASTA LANDI HEIMS. Og slíkt þjóðfélag þykir sumum á Íslandi bara fínt og til fyrirmyndar. Þeir myndu vart sætta sig við það sjálfir.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 278