Eftir að fráfarandi skordýrafræðingur Pírata, sem er hin versta eiturpadda, greindi skordýraflóru íslenskra stjórnmála, vakti það furðu mína að skordýralæknir einn, sem er mikil og feit fiskifluga samkvæmt eiturpöddunni, hafi boðið býflugum (S), mýflugum (P) og maurum (V) út í sveit. Kakkalakkar (D), Hrossaflugur (M), Drekaflugur (?) og Dægurflugur (Svört fortíð) voru ekki velkomnar að skordýrabúinu Stóru-Langloku á Hrunamannaafrétti - einhvers staðar fyrir austan fjall.
Eins og lengi hefur verið vitað í fornvistfræði, eru fiskiflugur, sem buðu í partíið, gleiðopnar í báða enda og bjóða stundum býflugum, mýflugum og maurum að leggja egg í afturendann á sér. Vel fór á með smádýrunum og voru allir þreifiarmar á fullu. Stóra geitungabúið í Evrópu (VESPA) var rætt lítillega og suðuðu býflugurnar vægt um að komast þangað inn.
Svo vildi til að ein býflugan, hunangslaus að öllu leyti, bar með sér tíkarþef að Norðan að skordýrabúinu. Þetta uppgötvaði hundurinn á bænum, Skarni Vænstan, og lagðist strax á fót býflugunnar og reið honum kátt. Þetta hátterni hundarins fór fyrir brjóstin á maurunum og mýflugunum sem reyndu að stilla Skarna með því að kalla hastarlega að honum: Ussu svei, Weinstein.
Haft er eftir öðrum sérfræðingum að MacSkýto byssufluga hafi verið heppinn, þar sem Skarni, sem er fyrrverandi eiturlyfjahundur, hafi ekki fundið á honum róandi töflur.
Haft er eftir Kötu brosmaur, að ekki sé svo mikill munur á fiskiflugum og maurum; Öll sé óværan ættuð úr sveitinni úr mykjuhaug eða gömlu, votu heyi.
Greinilega var þetta skordýraþing vel lukkað fyrir utan aðfarir Skarna, sem hefur greyið fengið svo gott pólitískt uppeldi að hann sýnir strax vilja eigenda sinna í einu og öllu, slefandi og glaður. Sérfræðingar telja sig hins vegar sjá mjög glögglega, að Skarni fór fyrst að sýna atlot að býflugunni þegar hún fór að minnast á evrópska geitungabúið.
Það verður aftur suðað í Hrunahrepp á morgun, þegar afstaða Íslands í utanríkismálum (þ.e. til Ísraelsríkis og Palestínumanna verður rædd). Búist er við mikilli samstöðu. Ef eitthvað sameinar fyrrnefnd skordýr er það hatur þeirra á gyðingum. Leitt að hrossaflugurnar gætu ekki verið með.
Vinnumaurar og fiskiflugur munu örugglega hrifla saman heyi, hestaskít og kúadellu og kalla það ríkisstjórn.