Quantcast
Channel: Er ekkert í ísskápnum?
Viewing all articles
Browse latest Browse all 278

Elton John giftist ekki

$
0
0

Já, loksins eftir 21 árs reynslutíma og 9 ár í skráðri sambúð. En eitt er víst. Elton John giftist hvorki né kvænist David Furnish! Furnish er nefnilega ekki kona frekar en Sir Elton. Þeir félagar verða gefnir saman eða ganga í hjónaband. Menn kvænast konum og konur giftast körlum. Kannski ættum við frekar að segja að þeir séu samgefnir fyrst þeir eru samkynhneigðir?

"Breski tón­list­armaður­inn Elt­on John ætl­ar í dag að gifta sig". Er ekki lengur kennd setningafræði á Íslandi? Kannski er Jón Valur hættur að prófarkarlesa á Morgunblaðinu, eða vill hann ekki koma nálægt fréttum af eins óheilögu fyrirbæri laughing og hjónaböndum samkynhneigðra?

Ég óska körlunum til hamingju með "brúðhlaupið" og óska þeim alls hins besta í að minnsta kosti 21 ár til viðbótar reynslutímanum. Um leið vona ég að málfarið batni á íslenskum fjölmiðlum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 278