Image may be NSFW.
Clik here to view.
Gunnar Bragi er í París. Var ekki annars kolófært út á Keflavíkurflugvöll? Sjáið sveitamanninn, búinn að tileinka sér franska siði á einum degi, t.d. lausa úlnliðinn. Hann er farinn að tala með höndunum, Si vous plait! Svo hefur utanríkis fengið sér bindi í stíl við Fabius, perlulitað. Uhlala. Les boys skemmta sér greinilega í París.
En leitt þykir mér, að í allri munnræpunni sem fór þeirra á milli, og þar sem þeir leystu gyðingavandamálið í Palestínu og Gunni fullvissaði Fabius um hvað Íslendingar væru smáir og sérstæðir, þá gleymdi Gunnar Bragi að nefna hrútinn Erlend og ána Vigdísi, sem voru íslensk fórnarlömb franskrar Upplýsingar á 18. öld.
Þau Erlendur og Dísa voru verðlaunadýr sem franskir landmælinga- menn numdu á brott snemma sumars 1760. Gunnar Bragi var búinn að lofa að spyrjast fyrir um meint örlög þessara merkisdýra sem Fornleifur hefur nú afhjúpað að ákveðnu marki. Bæði voru þau frá Skagaströnd, úr kjördæmi Gunnars Braga. Dísa endaði sem súpukraftur í Versaille og Erlendur sem ragout í Bastillunni.
Nú fá sauðasmalar Íslands aldrei að vita smáatriðin um örlög þessa ólöglega útflutnings árið 1760.
Gunnar Bragi, þú brást. Þú ert jarmandi fíaskó.
Image may be NSFW.
Clik here to view.Image may be NSFW.
Clik here to view.
In Memoriam Disa og Erlendur