Quantcast
Channel: Er ekkert í ísskápnum?
Viewing all articles
Browse latest Browse all 278

Sápan af Landsspítalanum

$
0
0
tommi_laeknir.jpg

 

Myglulæknirinn

Í 80 ára byggingu er enginn korkur. Ef mygla er komin í kork í vegg Landspítala er það vegna síðari framkvæmda við gluggaumgjörðir. Það gæti afi Tómasar Guðbjartssonar yfirlæknis (f. 1965) og nafni hans hafa getað sagt honum. Hann var líka iðnaðarmaður og byggði mörg húsin. Prófessor Tommi er ekki að segja satt í sápu Sjónvarpsins frá Landspítalanum. Má biðja um nöfn þeirra lækna sem veikst hafa af myglu á Landspítalanum? Nei, allar upplýsingar um lækna á Íslandi eru hernaðarleyndamál. Orð þeirra eru orð guða, og við eigum bara að trúa þeim og halda svo kjafti.

geymsla.jpg
Rauða örin sýnir að ekki er þetta geymsla eða gæsla. Þetta er sjúkrastofa sem hefur verið notuð undir hirðuleysi á Landsspítalanum.

 

Kompur og geymslur

Árið 1971 voru sjúklingar líka settir inn í kompur, og það miklu minni en "tækjageymslan" (gæslustofan)  með súrefnisinntakinu á Landspítalanum nú. Skilti er hægt að taka af og setja á að vild. Tækjageymslan sem Tommi læknir sýndi okkur er greinilega upphaflega stofa fyrir sjúklinga.

Afi minn fékk eitt sinn mikla bólgu í hálsinn. Mig minnir að það hafi verið um 1972 og einhver læknalalli var búinn að ákveða að hann væri með krabbamein. Allir voru kvaddir til til að kveðja afa á Landspítalanum. Hann átti ekki langt eftir samkvæmt lækninum en samt hafði hann verið settur inn í litla kompu, því fínni maður þurfti að vera á stofunni sem hann kom upphaflega á.

Síðan kom í ljós að læknaljósið sem taldi afa vera með krabbamein, hafði ekki sóst bóklega námið sérlega vel, því afi var bara með hressilega ígerð og spýttist gröftur út um alla skurðstofu er læknarnir ætluðu að skoða krabbameinið. Afi lifði í 20 ár í viðbót og hlaut sem betur fer engan skaða af dvöl sinni á Landsspítalanum, þar sem hann var dæmdur krabbameinsdauða, áður en hann hafði verið rannsakaður að ráði.

Faraómaurar

Faraómaurar, sem einnig hrjá íslenska lækna í launakapphlaupi þeirra við sjálfa sig, eru vottur um lélegt hreinlæti. Það hefur lengi verið vandi á Landspítalanum, og hefur sá vandi ekkert minnkað þó laun lækna hafi hækkað verulega eftir árið 2000. Læknar gera ekki hreint, þeir heimta bara hærri laun.

Launabarátta íslenskra lækna er hins vegar ekki trúverðug. Tvær vesalings læknamúmíur sem áður unnu á Íslandi, allar gegnblautar af myglu og maurbitnar, réðu sig í föst störf í Noregi í fyrra. Líklega hafa ekki fleiri vafningar komist til fyrirheitna landsins vegna verkfalls flugumferðastjóra og flugmanna. Sögur af íslenskum faraómaurum gætu hafa orðið til þess að færri læknar fóru frá Íslandi en þeir sem lofuðu okkur því í síðustu atrennu.

Sápan af Landsspítalanum heldur örugglega áfram... í boði lygaveitunnar RÚV.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 278