Quantcast
Channel: Er ekkert í ísskápnum?
Viewing all articles
Browse latest Browse all 278

Íslenskt þjóðfélag er skopmynd

$
0
0
getfile_php.jpg

Allt er að verða vitlaust út af Ku-Klux-Klan teikningunni í Fréttablaðinu. Vissulega er þetta frekar klén teikning. Dagur er líka illa teiknaður og líkist mest Bryndísi Skram án brjósta. Hægra megin við Sveinbjörgu stendur maður sem stutt hefur Hamas. Enginn hefur sett hann í Hamasbúning á skrípamynd, þó hann styðji samtök sem beita sér fyrir eyðingu Ísraels og gyðinga, líkt og Hitler. Erfiðleikar Sóleyjar Tómasar við að eignast karlkyns afkvæmi vegna þess að hún ólst upp við eintóman kvennafans, var víst líka tilvalin skrípamynd sem aldrei birtist.

Palestíslendingar
Gott ef Georg Bjarnfreðarson er ekki líka orðinn Palestínumaður.
Nei, þessi í bláa jakkanum við hliðina á Hamasmanninum er líklega tvífari hans ... eða hvað, er þetta mákse nýja lookið hans Jóns Gnarrs?
 
Versti rasistinn í íslenskri pólitík, fyrr og síðar, var líklega Jónas Guðmundsson, sem var STÓRKRATI. Aldrei var teiknuð skopmynd af honum í gervi Ku-Klux-Klans. Enginn hefur teiknað ljótar myndir af Hermanni Jónassyni, sem persónulega beitti sér fyrir útvísun gyðinga frá Íslandi.
mynd_jonas_gu_mundsson.jpg
Jónas gaf út andgyðingleg rit í áraraðir og var jafnframt Krati, sat á Alþingi og var embættismaður í Reykjavík og sat í alþjóðlegum nefndum fyrir Íslands hönd. Logið er um sögu hans á síðu Alþingis. Yrði ekki allt vitlaust ef ég skellti lítilli hormottu a la Hitler á yfirvörina á Nasa?
 

Jú, skopmyndin af Framsóknarkonunni sem komst til "áhrifa" með hjálp Allah er afar óvönduð, sama hvaða skoðun maður hefur á mosku. Ólafur Stephensen ritstjóri Fréttablaðsins verður að gera sér grein fyrir því að aumkunarverðu lýðskrumi Sveinbjargar er ekki hægt að líkja við Ku-Klux-Klan. Kanahatur vinstrimanna hér um árið var líka kynþáttahatur að hluta til, þegar þeir sungu í kór um blessuð börnin sem fæddust uppi á Miðnesheiði:  "Ekki plagar okkar þjóð, vakkfódedillafodædódey, úrkynjun né gamalt blóð, því börnin fæðast brún og létt, með boginn fót og trýnið grett, sem Filippseyjafólkið nett".

Gleymum heldur ekki, að Sveinbjörg Slæða hefur reyndar áður gengið með eins konar slæðu. Hún vann fyrir Air Atlanta í Jeddah. Ekki kvartaði hún þá yfir múslímum, þegar þeir borguðu henni laun.

Er ekki vandamálið einfaldlega það að Íslendingar hafa upp til hópa verið útlendingahatarar og eiga erfitt með að viðurkenna að þeir eru nýlosnaðir úr hlekkjum fortíðarinnar?

Ruben og Felix 3
Af hverju var fjölskyldu Felix Rottbergers vísað úr landi? Felix var fyrsti gyðingurinn sem fæddist á Íslandi. Hermann Jónasson sá um að koma fjölskyldunni úr landi. Við tóku miklar hörmungar fyrir fjölskylduna í Danmörku, sem lesa má um í bók minni Medaljens Bagside. Myndin er tekin af syni mínum Ruben og Felix, þegar Felix heimsótti mig hér um árið til að tala í samkunduhúsi gyðinga í Kaupmannahöfn. Honum hefur hins vegar aldrei verið boðið til Íslands, landsins sem losaði sig við hann og fjölskyldu hans.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 278