Quantcast
Channel: Er ekkert í ísskápnum?
Viewing all articles
Browse latest Browse all 278

Herr Brinkmann, sendiherra ESB á Íslandi

$
0
0

matthias_brinkmann4.jpg

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er ekki aðeins upptekinn af fornleifamálum og verndun gamalla húsa. Nýlega kallaði forsætisráðherra sendiherra ESB á Íslandi til sín á teppið. Sendiherrann hafði sagt eitthvað sem ríkisstjórninni líkaði ekki og sem ekki getur talist sannleikanum samkvæmt, nema að maður sé ESB-sinni.

Ég hef lengi haft áhuga á stjórnmálamönnum sem segja ósatt. Sumir gera ekkert annað. Óalgengara er að löglærðir embættismenn eins og sendifulltrúar ríkja segi ósatt. Ég á erfitt að dæma um ummæli Matthias Brinkmann sendiherra því "ESB-sendiráðið í Reykjavík vill ekki tjá sig um fund Sigmundar með Brinkmann".  Brinkmann er ekki á landinu og heldur ekki Sigmundur. Ef til vill hafa þeir farið saman  til að leita að sannleikanum.

Starfaði í ráðuneyti sem ekki var til

Þar sem ég veit ýmislegt um Sigmund Davíð, langaði mig að forvitnast  um feril Matthias Brinkmanns. Á vef ESB eru gefnar upp staðlaðar upplýsingar um manninn (Sjá t.d. hér). Þar kemur meðal annars fram að hann hafi verið ráðinn (lánaður) að rannsóknarráðuneyti Dana á árunum 1987-90. Það kom mér heldur betur á óvart, því að rannsóknarráðuneytið danska varð ekki til fyrr en 1993. Hvernig getur Matthias Brinkmann hafa unnið á 9. áratugnum í ráðuneyti sem ekki varð til fyrr en 1993?  Það er mér hulin ráðgáta. Vonandi skýrir Brinkmann þetta yfir Íslendingum.

Reyndar hefur rannsóknaráðuneyti Dana haft mörg, örlítið mismunandi nöfn, og þeir sem starfa þar, t.d. kona mín, eiga stundum erfitt með að muna nýtt nafn ráðuneytisins í hvert skipti, en nafnið breytist gjarnan með stjórnarskiptum og nýjum ráðherrum. En það breytir ekki að ráðuneytið varð ekki til fyrr en árið 1993. Hr. Brinkmann, afsakið, Dr. Brinkmann, hefur aldrei unnið í rannsóknarráðuneyti Dana á tímabilinu 1987-90. Það er ekki mögulegt.

Einhver skekkja eða ónákvæmni er greinilega í ferilskrá Brinkmanns, sem stundum hefur kallað sig Bernhard Matthias. Þar er einnig upplýst, að hann hafi verið dómari við Verwaltungsgericht í Hamborg áður en hann hóf störf í Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins árið 1983 og hafi einnig doktorspróf í alþjóðarétti. Slík ábyrgðastörf og titlar voru alls fjarri þeim veruleika sem hann vann við í Stokkhólmi árið 1995, þegar hann var aðeins upplýsingafulltrúi ESB-skrifstofunnar i Stokkhólmi og auglýsti eftir tilboðum í prentun á bæklingum fyrir skrifstofu Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Stokkhólmi. (Sjá t.d. hér)

Starfaði hjá flóttamálastofnun SÞ, en sýnir algjöra vankunnátta um flóttamenn og minnihlutahópa ESB

Furðu sætir að maður sem segist hafa unnið á skrifstofu Flóttamannstofnunnar SÞ í Genf hafi orðið sér að fífli í Kanada, þegar hann móðgaði Rómafólk, með ósannindum og fordómum í garð þeirra: (sjá hér). Dr. Brinkmann sýndi klárlega fordóma í garð Róma-fólks og að hann þekkti ekki það sem Thomas Hammarberg fráfarandi forstöðumaður Flóttamannastofnunnar SÞ í Genf hafði  látið í ljós skömmu áður um hag Rómafólks í Evrópu.

Greinilegt er að Dr.  Matthias Brinkmann er ekki mjög trúverðugur embættismaður og hefur jafnvel unnið á stofnunum sem ekki voru til þegar hann segist hafa unnið þar.

Af hverju ættu Íslendingar að trúa því sem hann og ESB-sinnar segja, þegar þeir hafa heyrt annað frá yfirmönnum Brinkmanns og séð óhemjuneikvæða afstöðu ESB til landsins í ýmsum málum?

Viewing all articles
Browse latest Browse all 278