Það hefur ekki farið fram hjá mönnum að svæsnustu aðdáendur ESB-veldisins meðal Íslendinga eru duglegir þessa dagana að líkja Íslandi við Úkraínu. Maður sér Sigmundi Davíð í sífellu líkt við Pútín, en hvergi sér maður ESB-áhangendur líkja Árna Páli Árnasyni við nasistann, fasistann og ESB-aðdáandann Oleh Tyahnybok í Svobodaflokknum, sem fékk álíka mikið fylgi og Samfylkingin í síðustu kosningum og situr nú í ríkisstjórn Úkraínu sem stefnir inn í ESB með aðstoð Catherine Ashton, útvíkkarans og fyrrv. kommúnistans Stefáns Füle og illa upplýstra Bandaríkjamanna til hægri og vinstri.
Egill Helgason birti í gær mynd frá Krím á bloggi sínu við predíkun sem hann kallar "ógnvekjandi ljósmynd". Hann segir hana sýna mann í búningi sovésku KDVK-sveitanna og hinn í búningum hvítkósakka í þjónustu Zarsins. Egill upplýsir ekki hvaðan hann hefur myndina, hvenær hún var tekin eða hvað var að gerast þegar hún var tekin. Það er ekki nýtt. Tilgangur Egils er sögufölsun og það kemur í ljós í því hvernig hann leggur út frá myndinni og hvernig fólk skrifar athugasemdir sínar hjá útbelgdum Búdda ESB-sinna á Íslandi.
Egill Helgason upplýsir að Kósakkar hvítliða hafi sérstaklega sérhæft sig í að drepa gyðinga á Krím. Þetta alrangt hjá Agli. Allar ríkjandi og herjandi þjóðir og öfl á þessu svæði hafa sérhæft sig í drepa gyðinga og kenna þeim um allt. Reyndar drápu kósakkar ekki gyðinga í svo miklum mæli á Krím eins og t.d. Lenín, Stalín og Hitler og meðhjálparar þeirra. Stalín sendi ashkenas-gyðinga, sem hann ekki drap á Krím, til Síberíu, með Tatörum og öðrum minnihlutahópum, þar með talið Karaítum og tyrkneskumælandi gyðingum Krymsjökkum. Mér sýnist á öllu, að Egill Helgason viti yfirleitt ekkert um það sem hann er að skrifa, og það gerist nokkuð oft þegar hann predikar heitast fyrir ESB-söfnuðinum.
Í athugasemdum við færslu Egils má sjá að fólk elur á sömu fordómunum og grýlunum og hann.
Egill gleymdi hins vegar að segja blindum og heilaþvegnum lesendum sínum meira um hina raunverulegu gyðingamorðingja. Margar ógnvekjandi myndir eru til af þeim. Eftirfarandi myndir eru ekki af tveimur "drag-hermönnum" á Krím, heldur af morðingjum sem hylltir eru af fólki sem vill ganga í ESB með Agli og Árna Páli.

Kósakkar börðust ekki bara í herjum keisarans eða Kommúnista. Stríð og gyðingadráp var lífsstíll þeirra. Hér má sjá kósakkar sem skipuleggja dráp á gyðingum í gettóinu i Varsjá árið 1939. Þegar Egill og aðrir gyðingahatarar á Íslandi líkja Gaza við gettóið, þá gleyma þeir að Ísraelsmenn njóta ekki aðstoðar allra þeirra þjóða sem Þjóðverjar nutu, ÞAR MEÐ TALIÐ ÍSLENDINGA!!!!!!

Hér má sjá Úkraínumenn í þjónustu SS. Neðri myndin sýni úkraínska Waffen-SS liða í útrýmingarbúðunum í Belzec. Afkomendurnir þessara manna eru líklega ESB-áhangendur.
Hér má sjá stjórnarliða í nýrri ríkisstjórn Úkraínu. Þetta verða líklega samherjar prestsonarins úr Kópavoginum sem auðvitað er ekki neinn nasisti eða gyðingahatari - þ.e.a.s. ef Ísland gengur í ESB, en það vill meirihluti Íslendinga ekki. ESB-sinnar skíta á meirihluta, líkt og fasistarnir í Kíev skíta á meirihlutaskoðun íbúa Úkraínu - sem vilja ekki ESB.
Hér má sjá Úkraínumann, og ESB-SINNA, í búningi SS við minningarathöfn í Úkraínu í fyrra (sjá hér)
Meðan að ESB, útópía Egils Helgasonar og annarra lýðskrumara á Íslandi, leyfir meðlimum ESB að hylla SS og aðra gyðingamorðingja, t.d. síðastliðinn sunnudag í Ríga og í tvígang í Litháen i febrúar og mars, er það heldur þunnt og að sjá sama fólkið á sjúklegan hátt líkja saklausum þjóðernisrómantíker eins Sigmundi Davíð við Pútín keisara. Meirihluti vinstrimanna á Íslandi iðkar reyndar líka gyðingahatur í dag og styður öfl sem ætla sér að útrýma ríki gyðinga. Slíkt fólk hefur engan rétt á því að taka gyðinga sem gísla í myndafölsunarleik á áróðurssíðu ESB á Íslandi.
Þeir þeim sem láta ginnast af billegum hópæsingatilburðum Egils Helgasonar, sem vill greinilega gera ESB sinna að ofsóttum gyðingum, þá má upplýsa að NKVD-liðar sem Egill líkir við SS voru meðal þeirra sem frelsuðu gyðinga í útrýmingarbúðirnar Auschwitz.
Egill Helgason skal allra mann síst afskræma sögu gyðinga.