Quantcast
Channel: Er ekkert í ísskápnum?
Viewing all articles
Browse latest Browse all 278

Kamban og gyðingurinn Thalmay

$
0
0

Kamban og Draeger

Í gær skrifaði ég ritdóm um bók Sveins Einarssonar um Guðmund Kamban og lýsti óánægju minni með það að hann virðist ætla sér með bók sinni að hreinsa nasistann Guðmund Kamban. Sveinn segist þó ekki hafa notað heimildir sem hann fékk aðgang að um morðið á Kamban, því honum, eins og öðrum, voru settar strangar, danskar reglur um birtingu þeirra upplýsinga. Í samtali á ÍNN kom þó í ljós að Sveinn hefur að mínu mati lesið skjöl danska dómsmálaráðuneytisins, þó hann um leið segðist ekki hafa nýtt sér þau. Sveinn gæti vel hafa lýst því sem í skjölunum stendur, án þess að nefna nöfn. En hann velur að láta menn lifa í mýtunni um Kamban, sem veldur því t.d. að starfsmaður lygaveitunnar RÚV kallar "morðingja" Kambans múgæsingarmann. Hvaðan hefur lygaveitan þær upplýsingar?

Þegar Simon Wiesenthal stofnunin krafðist rannsóknar á máli stríðs-glæpamannsins Eðvalds Hinrikssonar árið 1992 brugðust ýmsir einstaklingar heiftúðlega við. Þeir vildu ekki heyra sannleikann, sem þó kom fram að lokum. Leifur heitinn Sveinsson lögfræðingur æsti sig mjög og ritaði dómsmálaráðuneyti Dana bréf , þar sem hann krafðist þess að ráðuneytið svaraði þremur spurningum um dauða Kambans.  Dauði Kambans var greinilega sumum á Íslandi meiri harmdauði en allir þeir gyðingar sem Mikson og félagar hans myrtu í Eistlandi.

Ég bið lesendur mína  vinsamlegast að lesa frásöguna af Jacob Thalmay í ritdómi mínum á Fornleifi í gær. Ég er ekki eins viss um og Sveinn Einarsson í sápuþvætti sínum á Kamban, að Kamban hafi ekki borið blak af nasista-ofsóknum Þjóðverja. Kamban var í félagsskap sem fyrirleit gyðinga. Kamban hefði ekki fengin sýknudóm hefði hann ekki verið skotinn. Svo einfalt er það mál.

norgeslexi3

Hans Draeger og Vidkun Quisling

 

Myndin efst sýnir Kamban með Dr.h.c. Hans Draeger (t.h.) sem var yfirmaður Nordische Verbindungs-stelle, sem sá um áróður nasista á Norðurlöndum. Myndin neðst sýnir Draeger med Quisling og enn neðar með landssölu-manninum Scavenius í Danmörku. Einkunnarorð Draegers voru "Evrópa fyrir Evrópubúa". Draeger kom að stofnun Institut zur Erforschung der Judenfrage. Kamban kunni svo sannarlega að velja sér vini við hæfi.

ke018917

Hans Draeger (t.v.) og Scavenius (t.h)


Viewing all articles
Browse latest Browse all 278