Ég var ungur. Hrokkinkollur. Þegar ég horfði ekki á stöðvarmerki RÚV og drakk Sinalco, vann af og til sem sendisveinn á opinberri stofnun. Það má alveg koma fram að ég vann hjá RÚV á Skúlagötunni. Það var engin skítastofnun í þá daga.
Eitt sinn sem oftar var ég að fara niður með lyftunni á Skúlagötu 4, sem var sívöl í laginu. Í lyftunni voru staddar tvær konur um miðjan aldur. Ekki voru þetta þó miðaldra kvenrembusvín, því þær eru vitaskuld ekki til.
Ein þessara kvenna gerði sér lítið fyrir og stakk vísifingri sínum inn í eina af mörgum slöngukrullum mínum sem héngu á enninu á mér.
Þetta kom vitanlega mjög illa við mig og ég vissi ekki hvað á mig stóð veðrið. Þó konan, sem var þulur, hefði aðeins borað í krulluna var eins og hún hefði rifið í pung mér.
Menn á 15. aldursári eru mjög viðkvæmir við allri líkamlegri nærveru kynjanna, og ég var sérstaklega viðkvæmur, enda með krullur.
Ef konan hefði ekki sagt eitthvað og bjargað þessari pínlegu uppákomu, er ég hræddur um að ég hefði aldrei borið barr mitt eftir þetta. Ég hefði orðið pírati og lent í meðferð fyrir hverjar kosningar.
Konan í lyftunni sagði með sinni landsþekktu rödd: "Vilhjálmur, er þetta permanent eða þínar eigin krullur? Ég vildi að ég væri með svona hár".
Ég hafði ekki vit á því að segja "G... , þetta eru Carmen-rúllur - annað ekki". Ungir menn eru svo kúgaðir og bældir á þessum árum að líklega hefur aðeins heyrst veikt: "Grr, ggung" frá mér.
Maður var svoddan þunnildi á þeim árum sem konur potuðu í hárið á mér.
Þetta voru ugglaust aðeins móðurlegar tilfinningar sem komu fram í konunni í lyftunni og hún kyssti mig ekki einu sinni á kinnina. Konan sem potaði í mig slapp því við sálfræðinginn og ég hafði engin vandamál út af þessu - nema hvað mig dreymdi þetta stundum alveg fram undir fertugt. Vaknaði oft í svitabaði.
Ég vil þó taka fram að ég hef mikla samúð með Björku og öðrum frægum prímadonnum sem hafa orðið fyrir aðkasti að völdum siðlausra manna. Sér í lagi þeim sem lent hafa í Lars von Trier. Hann er svo djövull slísí og sick að það er jafnvel erfitt fyrir karla gera sér það í hugarlund.
Ég lýsi stuðningi mínum baráttuna við hið ógeðslega karlpungaveldi, sem er ríkjandi í nær öllum ríkjum heims nema á Íslandi.
Niður með greðjukarlinn! Við lifum á 21. öld.