In Memoriam
Blaðamanni Moggans yfirsást líklega, að tveimur klukkustundum áður en hann skrifaði um málið hafði Fornleifur greint frá því á Moggablogginu.
Hvergi stendur í fræðigreinum um efnið, að formæður Íslendinga hafi verið "fornnorrænar" líkt og fréttin hermir, og enginn hefur mér vitanlega haldið því fram að þeim hafi verið nauðgað, þó einhverjir héldu vegna niðurstaðna vísindamanna deCODE (Íslenskrar Erfðagreiningar), að landnámskonur hefðu mestmegnis verið frá Bretlandseyjum.
Nú er ljóst, að þær voru mestmegnis norskar alveg eins og karlarnir. Og þó þær hefðu verið rauðhærðar gellur frá Orkneyjum, trúi ég því ekki að Hallgrímur eða Þorvarður hafi verið að nauðga þeim til vistar á Íslandi. Slík söguskoðun lýsir ef til vill frekar ástandinu á Íslandi í dag.
Hér má lesa vandaða frásögn Fornleifs, þar sem er að finna hlekk í grein Eriku Hagelbergs prófessors í Ósló.